Grafarvogur Bæta við Leita
Allir viðburðir
Börn & fjölskyldurMenning & fræðsla

Tékkneskt leikhús fyrir börn

Hvenær
Laugardagur 28. nóvember
kl. 14:00–15:00
Hvar
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41
Verð
Ókeypis

Við bjóðum velkominn á bókasafnið tékkneskan leikhúshóp með sýninguna sína; Kawloon. Leikhúshópurinn hefur áður komið á Borgarbókasafnið Spöngina með brúðuleiksýninguna TakkTakk þar sem færri komust að en vildu.

„Kawloon, eitt risastórt fjölbýli. Stærsta fjölbýlishús í heimi, sem er ekki lengur til. Endalausir, krókóttir og dimmir ranghalar þar sem þeir sem eiga ekki heima þar villast. Og Tuan stendur einn við hlið byggingarinnar. Hann þarf að komast inn, finna leið sína um ranghalana og finna sér nýtt heimili.“

Þessi sérstaka sýning hentar börnum og fjölskyldum sem vilja upplifa eitthvað alveg nýtt.

Sýningin verður á ensku og er fyrir börn eldri en sex ára.

Frítt er á sýninguna.

Nánari upplýsingar veitir: Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur [email protected]

Opna í Google Maps

Meira á sama stað

Heimild: reykjavik.is.

Eitthvað rangt? Leiðrétta
Í hvaða flokki á viðburðurinn heima?
Eitthvað annað?